Við slógum á þráðinn til Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Gular veðurviðvararnir taka gildi eftir því sem líður á morguninn á Vestfjörðum og Breiðafirði. Við ræddum veðrið bæði til skamms og lengri tíma við Einar.
Um 3000 þúsund stelpur í 5., 6. og 7. flokk kvenna knattspyrnu koma saman í Kópavogsdalnum í dag og um helgina til að taka þátt í fertugasta Símamóti Breiðabliks. Hlynur Höskuldsson er formaður barna- og unglingaráða Breiðabliks og mótsstjóri. Hann leit við hjá okkur.
Samdráttur er í ferðaþjónustunni hér á landi. Ísland fellur niður listann hjá leitarvélinni Google og ferðaþjónustan finnur fyrir samdrætti. Við forvitnuðumst um stöðuna hjá bílaleigunum og heyrðum í Magnúsi Sverri Þorsteinssyni sem er einn eiganda bílaleigunnar Blue í Reykjanesbæ.
Baldur Þórhallsson stjórnmálafræði prófessor og fyrrverandi forsetaframbjóðandi situr ekki auðum höndum þessa dagana. Hann stendur í ströngu, ásamt fleira góðu fólki, við að grafa upp Hrútshelli við Ægissíðu á Hellu. Hellirinn virðist stærri en búist var við og nokkuð dýpra á honum en talið var. Við fengum að heyra af því.
Til að fara yfir fréttir vikunnar með okkur í lok þáttar komu þau Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir af fréttastofu RÚV og Orri Páll Ormarsson blaðamaður á Morgunblaðinu til okkar.
Tónlist:
Dikta - From Now On.
Duran Duran- Ordinary World.
Salka Sól Eyfeld - Sólin og ég.
Bubbi Morthens - Tveir tveir fjórir.
Bill Withers - Lovely Day.