Bretar ganga til kosninga 4. júlí og að öllum líkindum verða þær sögulegar. Við hringdum í Sigrúnu Sævarsdóttur-Griffiths sem er búsett í Lundúnum og spurðum hana hvort leikar séu farnir að æsast vegna þingkosninganna.
Við heyrðum af verkefni sem íslensk og frönsk ungmenni taka þátt sem er ætlað til að styðja við ungmenni sem eiga við einhvers konar vandamál að stríða sem gerir það að verkum að þau rekast illa í samfélaginu. Verkefnið heitir UTI 2024 og gengur út á að vinna listræn verk í náttúrunni, skapa myndir, upptökur, ljóð o.fl. sem síðan eru sett upp á sýningu, bæði á Íslandi og í Frakklandi. Jósep Gíslason, sem er forsvarsmaður verkefnisins og hin franska Julie Seiller heimsóttu okkur ásamt nokkrum þátttakenda og sögðu okkur meira.
Meistarmót Íslands í frjálsum íþróttum fer fram á Þórsvellinum á Akureyri um helgina. Þar er síðasti séns fyrir afreksfólkið okkar að ná lágmarki fyrir Ólympíuleikanna í sumar. Ari Heiðmann Jósavinsson, yfirþjálfari meistaraflokks Ungmennafélags Akureyrar, UFA, var á línunni.
Í kvöld er opnunarkvöld hátíðarinnar Hjarta Hafnarfjarðar sem fram fer í miðbænum. Hátíðin er samstarfsverkefni aðila sem er umhugað um menningarlíf í hjarta Hafnarfjarðar. Maðurinn sem veit allt um hátíðina heitir Páll Eyjólfsson og hann kom til okkar.
Lagalisti:
Ragnhildur Gísladóttir - Sjáumst þar (Þjóðhátíðarlagið 2017)
Stranglers - Always the sun
Purple Disco Machine og Benjamin Ingrosso - Honey Boy (FT. NILE RODGERS & SHENSEEA)
Blur - Tender
Hafdís Huld - Synchronised Swimmers
David Bowie - Heroes
Luke Combs - Fast Car
Roxy Music - More Than This
Björgvin Halldórsson - Sendu nú vagninn þinn (Gullvagninn)
Prince - I wanna be your lover
KUSK - Sommar