Morgunútvarpið

Miðnæturhlaup, næstum keyrður niður, Kringlan, golfvöllurinn á Akureyri, íþróttir og tæknihorn

Miðnæturhlaup Suzuki er hlaup sem haldið hefur verið árlega síðan 1993. Hlaupið í ár fer fram á fimmtudagskvöldið næsta og er upphaf og endir allra vegalengdanna í Laugardalnum. Hlaupin hefjast á Engjavegi og allir hlauparar koma í mark við Þvottalaugarnar. Margrét Elíasdóttir er hlaupastjóri og var á línunni hjá okkur.

Bifhjólamaðurinn Mikkó segist þakka Teslu bifreið en ekki bílstjóra hennar hann er enn á meðal lifandi. Á dögunum var hann næstum ekinn niður þegar Teslu bifreið var ekið gegn rauðu ljósi, hans sögn, og í átt honum og hefði ekki þurft spyrja leikslokum fyrir hann ef bílinn hefði ekki stöðvað en bílstjóri bifreiðarinnar virtist bregða jafnmikið við hemlunina eins Mikkó. Mikkó segir okkur söguna á eftir, eins og hann upplifði hana.

Um helgina kviknaði í þaki á austurhlið Kringlunnar og litlu mátti muna hann færi úr böndunum. Það var fyrir snarræði slökkliðsmanna ekki fór verr en tjón er samt mikið. Tíu verslanir eru eiga við mikið tjón til mynda. Inga Rut Jónsdóttir er framkvæmdarstjóri Kringlunnar og hún fór yfir stöðuna með okkur.

Eftir mikla kuldatíð á Norðurlandi hafa eflast margir kylfingar fyrir norðan og austan haft miklar áhyggjur af golfvöllum á svæðinu. Við ræddum við Jón Heiðar Sigurðsson, skrifstofustjóra Golfklúbbs Akureyrar en þar á hefur verið mikið gera síðustu vikur við það koma vellinum í rétt horf.

Helga Margrét Höskuldsdóttir leit við og fór yfir það helsta í íþróttunum

Og svo var Guðmundur Jóhannsson mættur til fræða okkur um nýjustu tækni í hálfsmánaðar Tæknihoninu. Í dag sagði hann okkur frá áætlunum um betri hljómgæði á streymisveitum og hvort þau skili sér alla leið í eyrun.

Lagalisti:

GDRN - Parísarhjól

Terence Trent D'Arby - Wishing Well

LEN - Steal My Sunshine

Purple Disco Machine ásamt Benjamin Ingrosso, Nile Rodgers og Shenseea - Honey Boy

Magic! - Rude

Una Torfadóttir - Í löngu máli

Bill Withers - Lean On Me

Stevie Nicks - Edge Of Seventeen

Hljómsveitin Ég - Maðurinn

Frumflutt

18. júní 2024

Aðgengilegt til

18. júní 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,