Morgunútvarpið

13. des - Skemmdarverk, bankakerfið og gen

Við byrjum á krúttlegum nótum. Við fáum Gígju Jónsdóttur, verkefnastjóri Barna- og fjölskyldudagskrár Dansverkstæðsins og Guðrún Óskarsdóttir, skólastjóra Óskanda til segja okkur frá hreyfistundum fyrir 2 mánaða börn til skríðandi.

Fyrr í vetur voru nóbelsverðlaun í læknisfræði veitt fyrir finna míkróRNA (miRNA) sameindir og greina hlutverk þeirra í stjórnun genatjáningar. Hvað í ósköpunum er genatjáning og afhverju skiptir þetta máli? Arnar Pálsson Prófessor í lífupplýsingafræði segir okkur betur frá því.

Við ræðum við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing um öldu skemmdarverka í Evrópu sem Rússar standa fyrir og hvernig það tengist þessari umræðu um varnarmál hérna heima.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, verður gestur okkar eftir átta fréttir.

Við förum síðan yfir fréttir vikunnar venju samkvæmt í lok þáttar, í þetta skiptið með borgarfulltrúunum Alexöndru Briem og Friðjóni R. Friðjónssyni.

Frumflutt

13. des. 2024

Aðgengilegt til

13. des. 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,