Samgönguminjasafnið Ystafelli, sem staðsett er mitt á milli Akureyrar og Húsavíkur hefur fjöldann allan af fornbílum til sýnis en óhætt er að segja að þar kenni ýmissa grasa. Til að mynda er þarna DeLorean en sá bíll varð þekktur fyrir að vera notaður sem tímavél í kvikmyndaseríunni Back to the future. Forstöðumaður safnsins er Sverrir Ingólfsson og hann var á línunni.
Tjón hefur mjög víða orðið hjá sauðfjárbændum á Norðurlandi eftir hretið á dögunum. Hreti kom ofaní kal í túnum eftir veturinn. Bændur segja að vorverkin séu í raun svona mánuði á eftir því sem gerist í hefðbundnu árferði. Eyjólfur Ingvi Bjarnason, formaður deildar sauðfjárbænda hjá Bændasamtökunum fór yfir stöðuna með okkur.
Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi, sem kemur til okkar í Morgunútvarpið hálfs mánaðarlega fór þennan miðvikudaginn aðeins yfir það sem valið stendur um þegar við tökum íbúðalán. Það ber töluvert á að fólk þekki ekki þessi mál nógu vel þegar það tekur sínar stærstu fjárhagslegu ákvarðanir í lífinu.
Fágun – félag áhugafólks um gerjun – heldur út fyrir landsteinana næstu helgi til að taka þátt í samnorrænni heimabruggkeppni. Fulltrúar Íslands eru sigurvegarar í árlegri bruggkeppni Fágunar, sem haldin var í maí síðastliðnum. Finnbjörn Þorvaldsson sem situr í stjórn félagsskaparins kom til að segja okkur meira.
Lagalisti:
KK - Vegbúi
Bjartmar & Bergrisarnir - Negril
Sabrina Carpenter - Espresso
Taylor Swift - Tim McGraw
Lón - Hours
Miley Cyrus - Flowers
Nýdönsk - Flugvélar
Prince - Cream
Hreimur, Magni og Gunni Óla - Árið 2001
Sheryl Crow - All I Wanna Do