• 00:01:04Ný ríkisstjórn
  • 00:14:51Ávarp forseta
  • 00:25:27Stytting náms til stúdentsprófs

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Ríkisstjórn endurnýjuð, forseti Íslands, stytting framhaldsskólans

Ríkisstjórnin hefur endurnýjað samstarf sitt eftir brotthvarf Katrínar Jakobsdóttur. Helstu breytingar eru að Sjálfstæðisflokkur fær forsætisráðuneyti en gefur eftir fjármálaráðuneytið til Framsóknarflokksins, sem eftirlætur innviðaráðuneytið Vinstri grænum. Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, og Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, fóru yfir stöðuna.

Á Besstastöðum standa yfir ríkisráðsfundir. Á þeim fyrri er ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur leyst frá störfum en á því seinna verður ráðuneyti Bjarna Benediktssonar skipað. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ávarpar fjölmiðla á milli funda. Við sýnum beint frá Bessastöðum.

Umræðuþátturinn Torgið verður helgaður styttingu náms til stúdentsprófs á fimmtudagskvöld. Mikil umræða hafði átt sér stað í gegnum tíðina áður en skrefið var tekið um miðjan síðasta áratug. Við stiklum á stóru yfir umræðuna í gegnum árin.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,