Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Jóla-netverslun, UMF Grindavík og Jóladraumar

Erlend netverslun nemur 45 milljörðum í ár ef spár ganga eftir og tvöföldun varð á því sviði milli októbermánaða í ár og í fyrra. Klara Símonardóttir forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar og Þórhildur Ólöf Helgadóttir forstjóri Póstsins ræða aukið umfang netkaupa og álag hátíðanna. Körfuboltalið Grindavíkur varð að sameiningartákni bæjarins á umbrotatímum og gerð var heimildaþáttasería um viðburðaríkan tíma í sögu liðsins sem sýnd er á Stöð 2 sport. Jóladraumar er nýtt dansverk eftir Ingu Maren Rúnarsdóttur sem Íslenski dansflokkurinn sýnir í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. Þar fer Harpa Arnardóttir með ýmis hlutverk en leiðarstef verksins er að finna hinn sanna jólaanda.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,