• 00:01:03Fjölskylda snýr aftur til Úkraínu
  • 00:08:23Wasteland
  • 00:15:33Menningarfréttir

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Úkraínsk fjölskylda ætlar aftur heim, Wasteland, Menningarfréttir

Úkraínsku hjónin Volodymyr og Anna Mazur hafa búið á Íslandi ásamt tveimur ungum dætrum sínum frá því að Rússar réðust inn heimaland þeirra. Þau hafa nú ákveðið að snúa aftur heim og Volodomyr ætlar að ganga í herinn. Kastljós hitti fjölskylduna á dögunum, en á laugardag verða 2 ár liðin frá innrás Rússa í Úkraínu.

Ógrynni af rusli fellur til í byggingariðnaði á ári hverju og endar á haugunum. Rusl er reyndar ekki rétta orðið því mikið af þessum efnum getur átt sér framhaldslíf. Dansk-íslenska arkitektastofan Lendager hefur helgað sig að draga úr sóun í byggingariðnaði með endurnýtingu að leiðarljósi, eins og sjá má á sýningunni Wasteland í Norræna húsinu.

Í Menningarfréttum vikunnar lítum við á draumkennda málverkasýningu Ernu Mistar og kynnum okkur glænýja rokkóperu Þórs Breiðfjörð í Tjarnarbíó, sem heitir Hark.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,