ok

Kastljós

Umhverfis- og loftlagsmál, formenn í vinnu, hin hliðin á Sönnu Magdalenu

Fram að kosningum ætlum við að fjalla um valin málefni sem hafa verið áberandi í umræðunni á kjörtímabilinu og draga upp mynd af stöðunni sem bíður næstu ríkisstjórnar. Við byrjum á umhverfis- og loftslagsmálum.

Forráðamenn flokkana þeysast nú um landið eins og vonbiðlar í leit að atkvæðum fyrir kosningar. Við í Kastljósi fórum líka um landið og spurðum vinnandi fólk hvernig því líst á fólkið sem er að bjóða fram krafta sína.

Við ætlum næstu vikur að kynnast persónulegri hlið á formönnum og forystufólki allra flokka sem eru í framboði. Við byrjum á Sönnu Magdalenu Mörtudóttir í Sósíalistaflokknum en Viktoría settist niður með henni á heimili hennar - og það skal tekið fram að það var bannað að tala um pólitík.

Frumsýnt

7. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Kastljós

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,