Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra
Rætt við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra um þingveturinn, stóru málin, stöðuna í Íran og leiðtogafund NATO sem hún sækir í vikunni,
Kona sem varð fyrir lífshættulegri líkamsárás af hendi fyrrum sambýlismanns síns í október segir kerfið hafa brugðist sér í aðdraganda árásarinnar. Maðurinn ofsótti hana mánuðum saman og beiðni um nálgunarbann var hafnað daginn sem árásin átti sér stað. Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir ofbeldi í nánu sambandi dauðans alvara og mikilvægt sé að viðbragðsaðilar séu undirbúnir og geti brugðist rétt við.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.