ok

Kastljós

Sorpflokkun, uppbygging á Kópaskeri og fiðluleikarinn Leila Josefowicz

Sorpa ætlar að hætta að dreifa pokum fyrir lífrænan heimilisúrgang í matvöruverslanir vegna kostnaðar af völdum hamsturs. Fólk þarf þess í stað að gera sér ferð á endurvinnslustöðvar til að ná sér í poka. Eins og sjá má á samfélagsmiðlum hefur þetta hleypt illu blóði í margar íbúa á höfuðborgarsvæðinu, sem finnst það skjóta skökku við að vera gert að keyra lengra í þágu umhverfisverndar. Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu, er gestur Kastljóss auk þess sem rætt var við borgarbúa sem eru ekki sáttir við breytingarnar.

Mikil atvinnuuppbygging á sér nú stað á Kópaskeri og í Öxarfirði, í fyrsta sinn í mörg ár. Íbúum fjölgar hins vegar hægt og illa gengur að laða ungt fólk á svæðið. Við fórum á Kópasker og tókum stöðuna á samfélaginu.

Hin kanadíska Leila Josefowicz er einn þekktasti fiðluleikari heims. Hún er jafnframt staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands í vetur og heldur tvenna tónleika í Eldborg í vikunni. Við hittum fiðluleikarann í aðdraganda þeirra.

Frumsýnt

10. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Kastljós

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,