Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Aukin harka í umræðum um málefni útlendinga

Umræða um innflytjendur og flóttafólk hefur farið hátt undanfarið og aukin harka færst í hana. Nú síðast sló í brýnu milli tveggja hópa þegar mótmæli voru haldin á Austurvelli um helgina. Hópurinn Ísland, þvert á flokka, stóð fyrir mótmælum gegn stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum hælisleitenda - en samtökin No Borders Iceland mótmæltu undir yfirskriftinni Samstaða gegn rasisma. Rætt er við Valdimar Víðisson bæjarstjóra í Hafnarfirði og Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttir staðgengil bæjarstjórans í Reykjanesbæ. Bæði sveitarfélögin hafa tekið á móti fjölmörgum umsækjendum um alþjóðlega vernd og flóttafólki undanfarin ár.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,