Áframhaldandi fréttir af mikilli ókyrrð í flugi vekja upp spurningar hjá fólki. Veðurfræðingar hafa sagt að slíkum tilfellum geti fjölgað um allt að helming vegna hamfarahlýnunar. Sævar Helgi Bragason leit við hjá okkur og fór yfir vísindin og ókyrrðina.
Framkvæmdir við gatnagerð eru nú í gangi á Borg í Grímsnesi en til stendur að úthluta lóðum undir 57 íbúðir. Þá stendur líka til að byggja upp verslunar- og þjónustusvæði, athafnasvæði og 9 holu golfvöll á svæðinu. Íbúar eru stórhuga og segja að svæðið verði paradís fyrir þau sem kjósa kyrrð og ró fram yfir ys og þys en vilja samt hafa alla þjónustu í næsta nágrenni. Iða Marsibil Jónsdóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, var á línunni.
Stjórnvöld hafa ákveðið að flýta ljósleiðaravæðingu tengdra lögheimila á landinu um tvö ár og hafa að auki gert það að markmiði sínu að aðgengi að ljósleiðara nái til 100% lögheimila fyrir árslok 2026. Í tilkynningu frá Háskóla,- iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu segir að um sé að ræða langþráða heildstæða uppfærslu fjarskipta gagnvart þúsundum heimila um land allt. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fór yfir þetta mál með okkur.
Það er eðlilegt að tala um offitu en það er ekki sama hvernig það er gert. Þetta er meðal þess sem kemur fram í í meistararannsókn Unnar Guðjónsdóttur, hjúkrunarfræðings, en hún er nú birt ritrýnd í Tímariti Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Algengi offitu í heiminum hefur farið hraðvaxandi síðustu áratugi og er hefur fullorðnum Íslendingum með offitu hefur farið fjölgandi og var hlutfallið komið upp í 27,4% árið 2022. Unnur ræddi við okkur um offitu og hvernig það skiptir máli hvernig talað er um hana innan heilbrigðiskerfisins.
Líkt og komið hefur fram er talið að nýafstaðinn bruni í Kringlunni hafi kviknað vegna bræðslu þakpappa sem fór úrskeiðis. Hrefna Sigurjónsdóttir verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá segir brunatengda logavinnu of algenga og því vert að spyrja hvort betur megi fara í þeim efnum. Hún kom til okkar ásamt Friðriki Helga Árnasyni hópstjóra eignatjóna hjá Sjóvá.
Núna fara fram Írskir dagar á Akranesi sem ná hápunkti um helgina. Akurnesingar eru af írum komnir langt aftur í aldir og því tengir bærinn sig við Írland með bæjarhátíðinni sinni. Í kvöld fara t.d. fram tónleikar þar sem eingöngu írsk tónlist verður flutt. Einn bæjarbúanna er Saidhbhe “Sæf” Emily Canning sem er írsk stelpa sem býr og starfar á Akranesi. Hún er sem sagt íri á Írskum dögum. Hvað skyldi henni finnast um Írska daga á Íslandi?
Lagalisti:
Una Torfadóttir - Það sýnir sig (Studio RUV).
Hipsumhaps - Lsmlí (Lífið sem mig langar í).
Kristín Sesselja - Exit Plan.
Rebekka Blöndal - Sólarsamban.
Elton John - Philadelphia freedom.
Coldplay - Feelslikeimfallinginlove.
Sinead O'Connor - Mandinka.