Tónhjólið

Þjóðlagahátíðin á Siglufirði

Í Tónhjólinu liggur leiðin á Þjóðlagahátíðina á Siglufirði. Stemningin er tekin morgni fyrsta hátíðardags með stuttu spjalli við listrænan stjórnanda hátíðarinnar, Gunnstein Ólafsson, og lírukassaleikarann Guðmund Guðmundsson. Í þættinum hljóma hljóðritanir frá tónleikum Tríó Ljósu í Siglufjarðarkirkju, norsku þjóðlagasveitarinnar Österlide, sem fóru fram í Bátahúsinu og tónleikum finnsku þjóðlagasöngkonunnar Önnu Fält, sem fóru fram í bræðsluverksmiðjunni Gránu.

Birt

15. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Tónhjólið

Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.

Þættir

,