Tónhjólið

Bókin Klassísk tónlist og afrísk píanótónlist

Tónhjólið

3.11.2024

Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar á hverjum tíma.

Umsjón: Guðni Tómasson.

Gestur þáttarins þessu sinni er Magnús Lyngdal Magnússon sem nýlega gaf út bókina Klassísk tónlist - Á ferðalagi um tónlistarsöguna. Í viðtalinu er gripið niður í þættina Túlkun í tónlist sem Rögnvaldur Sigurjónsson hafði umsjón með í útvarpinu árið 1986.

Önnur tónlist í þættinum

Rebeca Omordia leikur af plötunni African Pianism II verkin Frisson de la nuit eftir Nabil Benabdeljalil og kaflann Soirée au Hoggar úr Minatures Algériennes eftir Salim Dada.

Alban Berg kvartettinn leikur tvo síðustu þættina í strengjakvartetti op. 131 eftir Ludwig van Beethoven.

Frumflutt

3. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Tónhjólið

Tónhjólið

Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.

Þættir

,