Við ræddum mótmæli stúdenta í Bandaríkjunum við Gunnar Þorsteinsson, doktorsnema í rafhlöðuverkfræði við Columbia Háskóla.
Doktorsverkefni Steinu Gunnarsdóttur, nema í heilbrigðisvísindum við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands snýr að því að skoða gjörunnin matvæli í kjölinn. Hún kom til okkar.
Hefur líðan fólks og þarfir gleymst eða orðið að lúta í lægra haldi fyrir hagræðingarsjónarmiðum þegar kemur að uppbyggingu íbúða í því húsnæðisátaki sem hófst fyrir um 10 árum síðan? Þetta er eitt af því sem Hildur Gunnarsdóttir arkitekt og kollegar hennar í þverfaglegum hópi Híbýlauðs spyrja að. Við fengum hana í spjall.
Forseti Íslands afhenti lýðheilsuverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í annað sinn í síðustu viku. Grunnskólinn á Ísafirði og Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og hópstjóri Sorgarmiðstöðvar, eru handhafar Íslensku lýðheilsuverðlaunanna í ár. Guðrún Jóna var gestur okkar eftir átta fréttir.
Helga Margrét Höskuldsdóttir á íþróttadeildinni kíkti til okkar með það helsta úr íþróttum helgarinnar uppúr hálf níu.
Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður, var á línunni hjá okkur í lok þáttar. Hann er að fara að stað með seríu tvö af þáttunum "Mig langar að vita" á Stöð2 í kvöld.
Tónlist:
Magnús Þór Sigmundsson - Sleðaferð.
10 CC - Dreadlock Holiday.
Travis - Sing.
Kristín Sesselja - Exit Plan.
Womack, Bobby - Across 110th street.
Sálin hans Jóns míns- Fyrir utan gluggann þinn.
Superserious - Bye Bye Honey.