Litla flugan

Oddgeir Kristjánsson

Seinni þáttur um Oddgeir Kristjánsson, tónskáld úr Vestmannaeyjum [1911-1966] í tilefni þess 16. nóv 2011 voru liðin 100 ár frá fæðingu hans. Dóttir Oddgeirs, Hrefna, og samstarfsfélagi hans, Ási í Bæ, segja frá - og lög Oddgeirs hljóma, m.a. Ungi vinur, Svo björt og skær, Vísan um dægurlagið og Góða nótt.

Frumflutt

24. nóv. 2011

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,