Litla flugan

Spilverk þjóðanna

Rifjuð upp lög af fjórðu, fimmtu og sjöttu hljómplötu Spilverks þjóðanna: Sturlu, Íslandi og Bráðabirgðabúgí, frá árunum 1977-79. Valgeir Guðjónsson, Sigurður Bjóla, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Egill Ólafsson syngja m.a um Sirkus Geira Smart, Aksjónmanninn, Grænu byltinguna, Landsímalínu og Gæfu eða gjörvileika. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir

Frumflutt

30. maí 2013

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,