Litla flugan

Friðjón, Örvar og Finnur bjóða upp í dans

Litla flugan býður upp í dans með hljómsveitum Friðjóns Jóhannssonar, Örvars Kristjánssonar og Finns Eydal. Meðal annars boðið upp á Tveggjamannaræl með Örvari, Vorsöng með Helenu og Finni, og Síðasta dansinn með Friðjóni Jóhannssyni og félögum.

Frumflutt

12. apríl 2012

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,