Litla flugan

Óðinn Valdimarsson

Þann 21. janúar nk. eru liðin 75 ár frá fæðingu söngvarans Óðins Valdimarssonar frá Akureyri, sem ungur sló í gegn með lögum á borð við Einsa kalda úr Eyjunum og Ég er kominn heim. Í þættinum verður farið yfir feril Óðins, leikin nokkur af hans bestu lögum og rætt við Helenu Eyjólfsdóttur söngkonu um árin hennar með Óðni í Atlantic kvartettinum.

Frumflutt

19. jan. 2012

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,