Litla flugan

Keflavík í poppskurn

Teknar til handargagns nokkrar hljómplötur frá keflvísku útgáfunum Geimsteini og Hljómum. María Baldursdóttir syngur lög af sólóplötunni Vökudraumar, frá 1974 og Áhöfnin á Halastjörnunni flytur lög eftir Gylfa Ægisson af plötunum Meira salt og Eins og skot, frá árunum 1980-81. Einnig hljóma lög með Engilbert Jensen, Jóhanni Helgasyni, Jóhanni G. Jóhannsyni o.fl. þar á meðal af plötunni Keflavík í poppskurn, sem kom út 1979. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir

Frumflutt

14. feb. 2013

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,