Litla flugan

Þokkabót

Dregnar fram gömlu Þokkabótarplöturnar frá árunum 1974-1979: Upphafið; Bætiflákar; Fráfærur og Í veruleik. Rifjaður upp ferill sveitarinnar sem í byrjun var skipuð þremur tónlistarmönnum frá Seyðisfirði: Gylfa Gunnarssyni, Ingólfi Steinssyni og Magnúsi R. Einarssyni; og einum úr Hveragerði, Halldóri Gunnarssyni. Leikin lög af plötunum fjórum og rifjað upp ýmislegt þeim tengt, sem birtist á prenti á þeim tíma: bæði plötudómar og pólítískt vopnaskak.

Frumflutt

8. mars 2012

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,