Litla flugan

78 snúninga plötur frá Tónika og Fálkanum

Flett í 78 snúninga staflanum og dregnar fram Tónika- og Fálka-plötur frá árunum 1954-56 með Ragnari Bjarnasyni, Ingibjörgu Þorbergs, Hauki Morthens, KK sextettinum, Orion kvintettinum, hljómsveit Jörns Grauengård o.fl. Einnig hljóma gamlar lakkplötuupptökur úr safni Útvarpsins, með hljómsveit Bjarna Böðvarssonar. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir

Frumflutt

26. apríl 2012

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,