Litla flugan

Helena Eyjólfsdóttir

Litla flugan fagnar stórafmæli Helenu Eyjólfsdóttu og leikur gömlu góðu lögin hennar, þ.á. m auðvitað einkennislagið Hvíta máva. Helena rifjar upp eitt og annað frá ferli sínum, þar á meðal fyrstu kynni sín af eiginmanninum, Finni Eydal og vinnuaðstæðurnar á dansgólfum aldarinnar sem leið. Einnig hljóma nokkur lög frá 50 ára söngafmælis-tónleikum Helenu, sem fram fóru vorið 2007.

Frumflutt

26. jan. 2012

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,