Litla flugan

Ingimar Eydal

Leikin lög með norðlenska hljómsveitarstjóranum Ingimari Eydal, í tilefni þess 20. október eru liðin 75 ár frá fæðingu hans. Óðinn Valdimarsson, Helena Eyjólfsdóttir, Þorvaldur Halldórson o.fl. syngja með Atlantic kvartettinum, hljómsveit Finns Eydal og hljómsveit Ingimars Eydal, í upptökum sem spanna sjötta, sjöunda og áttunda áratuginn.

Frumflutt

20. okt. 2011

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,