Litla flugan

Danslög á laugardagskvöldi 1961

Litla flugan skoðar gamla tónlistarskýrslu frá laugardagskvöldi haustið 1961 og leikur sömu danslögin og voru á dagskrá þá. Þar hljómuðu létt lög með hljómsveitum Joe Loss og Dick Jacobs í bland við yngri stjörnur dagsins: Hauk Morthens, Sigrúnu Jónsdóttur, Nat King Cole, The Blue Diamonds og The Platters.

Frumflutt

29. sept. 2011

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,