Litla flugan

Sigfús Halldórsson

Söngvarinn, píanóleikarinn, tónskáldið, málarinn, teiknarinn og Valsarinn Sigfús Halldórsson, syngur og leikur. Meðal annars hljóma brot úr sjónvarpsþáttum Sigfúsar og Tage Ammendrup frá 1967 og 1968, og útvarpsþætti Péturs Péturssonar frá 1952.

Frumflutt

10. nóv. 2011

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,