Þú veist betur

Kjarnorka - 2.hluti

Í síðasta þætti þá byrjuðum við fara yfir kjarnorku með okkar eigin kjarnorkuverkfræðing, Ágústi Valfells. Við fórum yfir söguna, reyndar líka bara yfir það hvernig atóm eru upp byggð, náttúran er sífellt losa orku úr kjörnum atómanna allt í kringum okkur, en bara mismikið. Hvernig Curie fjölskyldan, þar sem frægust er líklegast Marie Curie uppgötvaði eða einangraði þessi efni sem spiluðu svo stóra rullu í áframhaldandi þróun á kjarnorku og hvernig við notum hana. Seinni heimstyrjöldin setti smá strik í reikninginn og það varð augljóst hægt væri nota kjarnorku til alls kyns óverka sem síðar raungerðust eins og við flest vitum. Í bland við söguna ræddum við líka hvernig þessi efni virka á hvort annað og hvernig við byggðum fleiri kjarnaofna, þann fyrsta í Chicago rétt fyrir stríð og svo hvernig úrgangur verður til. Við ætlum halda áfram í þessum síðasta þætti Þú veist betur fyrir sumarfrí og ljúka yfirferð okkar um kjarnorku. Við byrjum samt á því ljúka samtalinu um hvað það er sem gerist þegar hlutir eins og Chernobyl eiga sér stað, hvernig áhrifin eru á allt og alla í kringum svona mikla geislavirkni og senu í þáttunum um slysið 1986 sem þau sem hafa séð muna vel eftir. Í framhaldi af því er það uppsetning kjarnorkuvera, hvað gerist inn í þeim og hvernig í ósköpunum framtíðin gæti litið út.

Umsjón: Atli Már Steinarsson

Frumflutt

12. júní 2022

Aðgengilegt til

1. jan. 2099
Þú veist betur

Þú veist betur

Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Þættir

,