• 00:02:17Leigumarkaður er menningarstefna
  • 00:21:11Kátt á línunni
  • 00:33:55Shrek-reif

Lestin

Shrek-reif, leigumarkaður er menningarstefna, Kátt á línunni

Listamenn velta fyrir sér menningarstefnu stjórnmálaflokka í aðdraganda kosninga. Lóa veltir fyrir sér nýjum íbúðum til sölu og fyrir hvernig líf pláss inn í þeim. Svo ímyndum við okkur persónu sem situr í hægindastól og les fréttir af spjaldtölvunni sinni um stöðuna á húsnæðismarkaðnum.

Um helgina fór fram í Gamla bíó, þemapartý og danstónlistarviðburður helgaður teiknimyndapersónunni Shrek sem birtist fyrst á hvíta tjaldinu árið 2001. Árið 2020 var haldið fyrsta Shrek-reifið í Los Angeles, og síðan þá hefur fyrirbærið breiðst út um allan heim. Og um helgina fór fram fyrsta Shrek reifið á Íslandi: “Búðu þig undir sleppa lausu tröllinu innra með þér í útrúlegasta teiti ársins” segir í kynningatextanum sex klukkutímar af yfirgengilegi skemmtun. Guðrún Úlfarsdóttir fór á reifið og við fengum hana til segja frá upplifuninni.

Við kíkjum á Café Catalina í Hamraborg og fræðumst um tónleikaröðina Kátt á línunni sem fer fram á staðnum þriðja fimmtudag í hverjum mánuði. Fyrstu tónleikarnir fara fram á morgun en þá koma fram BKPM, Juno Paul og Sucks to be you Nigel. Við ræðum við Pétur Eggertsson, skipuleggjanda.

Frumflutt

20. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson

Þættir

,