Lestin

Leyft öllum aldurshópum

Pólitískar vindvélar Evrópu, heimildarþættir um America's Next Top Model

Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, segir frá þáttunum Reality Check, sem fjalla um raunveruleikaþættina America's Next Top Model. Þeir hófu göngu sína árið 2003 og í þeim kepptust ungar konur um að verða næsta ofurfyrirsæta Bandaríkjanna. En það var ýmislegt misjafnt sem gekk á.

Gísli Marteinn Baldursson kemur og ræðir Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva, en fyrri undankeppnin fer fram í Vín í kvöld. Ísland er ekki með og er eitt fimm landa sem sniðganga keppnina vegna þátttöku Ísraels í henni. Við ræðum líka nýja þætti hans sem eru á dagskrá rásar 1, Pólitískar vindvélar Evrópu.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,