Lestin

Dystópíska myndasgan Huldufólk, ritstkoðun á ameríska TikTok

Árið 2061 nær golfstraumurinn ekki lengur til Íslands, þorskstofninn er hruninn, flóttafólk streymir til landsins, óstjórn ríkir og glæpagengi og stríðsherrar berjast um völdin - og það er alltaf rigning. Grímuklætt fólk á mótorhjóli stelur mikilvægum kassa frá líftæknifyrirtæki, og ungur tæknimaður lendir í klóm mannræningja.Einhvern veginn þannig er hefst íslensk myndasaga sem kom út hjá Froski útgáfu í desember. Huldufólk nefnist bókin og á bakvið hana standa teiknarinn Fannar G. Gilbertsson og höfundurinn Gunnar Birgisson - sem starfar sem lögfræðingur í Texas í Bandaríkjunum. Við ræðum við Fannar og Gunnar um myndasögur og niðurbrot samfélagsins

í janúar breyttist eignarhald á samfélagsmiðlinum Tiktok í Bandaríkjunum, en um langt skeið hafa bandarísk stjórnvöld viljað færa það úr höndum kínverskra eigenda, fyrirtækisins Bytedance, enda mikil tortryggni í garð þeirra og grunsemdir um áhrif kínverskra stjórnvalda. Um leið og nýir eigendur - sem eru nátengdir Donald Trump - tóku við varð umtalsverð breyting á virkni forritsins. Notendur héldu því meðal annars fram algóryþminn virtist dempa dreifingu á færslum tengdum Epstein-skjölunum og mótmælum gegn útlendingalögreglunni ICE í Minneapolis. Við ætlum fræðast um þetta, heyra hvort þetta hafi áhrif á íslenska notendur, og almennt um það hvernig Tiktok virkar í mismunandi heimshlutum. Tryggvi Freyr Elínarson, þróunarstjóri og sérfræðingur tæknilausna hjá Datera, útskýrir stöðuna.

Tónlistin í þættinum er frá Coby Sey og Láru.

Birt

5. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,