Um þessar mundir má sjá í kvikmyndahúsum þrjár myndir með þremur mismunandi Skarsgård í aðalhlutverkum. Hinn 74 ára Stellan leikur í norsku óskarsmyndinni Affeksjonsverdi, elsti sonur hans Alexander leikur í BDSM-homma-rómantíkinni Pillion og annar sonur, Bill, leikur í spennumynd leikstjórans Gus Van Sant, Dead Man's Wire. Reyndar eru allt í allt sex synir Stellans Skarsgård virkir í leiklistinni. Við forvitnumst um þessa miklu leikarafjölskyldu.
Ástin er formlega orðinn faraldur. Eiríkur Örn Norðdahl fjallar um það hvernig ástarsagan, það sem á ensku er kallað romance novel, er smám saman að leggja undir sig heiminn.
Og svo kíkjum við á Kabarett í Þjóðleikhúskjallaranum.
Leikhópur ókunnuga fólksins í leikstjórn Bjarts Örns Bachmann frumsýnir Kabarett næstkomandi föstudag. Söngleikurinn er byggður á leikriti sem er byggt á endurminningum frá Berlinarárum ungs rithöfundar. Weimar lýðveldið er við það að líða undir lok, Adolf Hitler er vinsæll pólitíkus, hægrimenn og vinstrimenn berjast á götum úti, samtímis dunar jazzinn í klúbbum borgarinnar.
Birt
17. mars 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.