Lestin

Maria Callas, ölvaðir prestar í Guðaveigum, besti tölvuleikur ársins

Í lok síðasta árs kom út kvikmynd byggð á síðustu dögum óperusöngkonunnar Mariu Callas. Kvikmyndin er þriðja og síðasta í þríleik síleska leikstjórans Pablos Larrains um athyglisverðar og merkar konur á 20. öldinni. fyrsta fjallaði um Jackie Kennedy, önnur um Díönu Prinsessu og þriðja fjallar um Callas. Við kynnum okkur myndina nánar í þætti dagsins. Fáum auki til okkar sérlegan óperuunnanda; Unu Margréti Jónsdóttur, dagskrárgerðarkonu á tónlistarsviði Rásar 1. Una heillaðist sjálf snemma af óperum eða þegar hún var 12 ára gömul. Allar götur síðan hefur óperan átt hug hennar og hjarta.

Fjórir prestar halda til Spánar til finna messuvín í betri gæðum en þekkst hefur á Íslandi hingað til. Þeir eru svo uppteknir við vinnu sína og smakkið þeir missa af kraftaverkunum sem gerast allt í kringum þá. Þannig lýsa nýjustu mynd Markelsbræðra - en grínmyndir þeirra hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina.

á dögunum valdi töluvleikjavefsíðan Nörd norðursins bestu tölvuleiki ársins 2024. Astro Bots var besti leikur ársins mati síðunnar. Við fáum til okkar ritstjóra síðunnar, Bjarka Þór Jónsson, og fáum heyra um Astro Bots og annað sem stóð upp úr á árinu í tölvuleikjaheiminum.

Frumflutt

9. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson, Lóa Björk Björnsdóttir og Anna Gyða Sigurgísladóttir.

Þættir

,