Lestin

Grindvíkingar - ári seinna

Það fer bráðum verða komið ár síðan Grindavíkurbær var rýmdur vegna eldgosahættu.

Fyrir rétt tæpu ári síðan höfðum samband við fjóra íbúa bæjarins og fengum þau til þess taka reglulega upp hljóðdagbækur á símana sína. Þau deildu hversdagsleikanum sínum, hugsunum sínum og áhyggjum á óvissutímum. Við klipptum það svo saman og fluttum í Lestinni yfir nokkurra mánaða skeið. Körfuboltaleikir, safnskólar, svefnleysi og maturinn sem varð eftir í frystikistum var meðal þess sem þau sögðu frá. Þannig gátum við sett manneskjur og líf í samhengi við fréttir af náttúruhamförum.

Í Lestinni í dag fáum við Grindvíkingana sem við kynntumst vel hér í Lestinni, en höfum aldrei hitt, til setjast niður með okkur og segja okkur hvað er frétta. Hvað hefur breyst. Hvernig líður þeim. Þetta eru Sigríður Gunnarsdóttir, Teresa Birna Björnsdóttir, Siggeir Fannar Ævarsson og Andrea Ævarsdóttir.

Frumflutt

23. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson

Þættir

,