Lestin

Besta bíómynd ársins, Sátan í Stykkishólmi, Audible, annað bréf til frænku

Útlendingar halda oft þungarokkshátíðin Sátan í Stykkishólmi heiti eftir myrkrahöfðingjanum sjálfur. En Sátan er líka fjall í nágrenni bæjarins. Degi áður en hátíðin hefst í annað sinn hringjm við vestur og ræðum við Gísla Sigmundsson sem skipuleggur hátíðina ásamt konu sinni og dóttur og góðum vinahópi. Hann spilar á hátíðinni ásamt hljómsveit sinni Sororicide, en þetta eru allra síðustu tónleikar þeirrar goðsagnakenndu dauðarokksveitar.

Við höldum áfram fylgjast með bréfaskriftum frænkanna Helgu Daggar Ólafsdóttur og Sölku Snæbrár Hrannarsdóttur. Í öðru bréfinu ræða þær meðal annars covid-tímann, mennskuna og nostalgíu.

Kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, Kolbeinn Rastrick, segir frá bestu mynd sem hann hefur séð á árinu.

Og Kristján vill segja upp áskriftinni sinni hljóðbókaveitunni Audible, en getur það ekki, sama hvað hann reynir.

Frumflutt

4. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,