Lestin

Bad Bunny brjálæði, ölvaðir handboltakappar á HM, skáldsaga eftir keisara

Á dögunum kom út sjötta hljóðversplatan frá Bad Bunny, Debí Tirar Más Fotos. Hún nýtur ótrúlegra vinsælda um allan hinn spænskumælandi heim, sameinar kynslóðir og þjóðir. Benito Antonio Martínez Ocasio er rúmlega þrítugur rappari og tónlistarmaður frá Puertó Ríkó, sem hefur algjörlega slegið í gegn undanfarin ár upphaflega með latin-trap og karabískri reaggaton-tónlist en hefur svo bætt í blönduna æ fleiri tónlistarstílum frá rómönsku ameríku. Hann hefur rutt brautina fyrir spænskumælandi listafólk á Grammy-verðlaunahátíðinni og verið einn mest streymdi tónlistarmaður heims ár eftir ár. Nína Hjálmarsdóttir er nýkomin frá suðurameríku þar sem ríkir Bad Bunny æði.

Íslendingar sigruðu Slóveníu í gær í þriðja leik sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta karla. Við erum með hugan við handbolta þessa dagana - reyndar stórmót sem var haldið fyrir nákvæmlega 30 árum. Við heyrum annan þáttinn í örseríu um HM95 sem var haldið á Íslandi. Og þessu sinni verður fjallað um umgjörð mótsins: poks, lukkudýrið Mókoll, lógó-ið, opnunarhátíðina og hádramatískt þemalag keppninnar en texti lagsins var saminn af þáverandi forsætisráðherra.

Við fáum við pistil um stórmenni og skáldskap, stríð og ást. Tiltölulega nýútkomna skáldsögu eftir einn frægasta og umdeildasta mann allra tíma. Meira um það á eftir í bíslagi Hermanns Stefánssonar rithöfundar.

Frumflutt

21. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson, Lóa Björk Björnsdóttir og Anna Gyða Sigurgísladóttir.

Þættir

,