ok

Lestin

Eldgosadagbækur, fyrirboðar um eldgos, Purrkur Pillnikk

Það er hafið eldgos á Reykjanesskaga! Seint í gærkvöldi hófst eldgos rétt fyrir norðaustan Grindavík. Frá því að bærinn var rýmdur höfum við reglulega fengið að fylgjast með tilfinningum og hversdagslífi þriggja Grindvíkinga. Teresa, Siggeir og Andrea sendu okkur hljóðdagbækur eftir að gosið hófst.

Kona ælir yfir allan bílinn sinn, önnur byrjar á túr, sú þriðja getur ekki svæft börnin sín. Þetta er aðeins örfá dæmi um þá fyrirboða sem fólk upplifði í gær í aðdraganda eldgossins. Lóa Björk veltir fyrir sér fyrirboðum.

Hin goðsagnakennda pönksveit Purrkur Pillnikk kom aftur saman á dögunum og spilaði á tónleikum í Smekkleysu til að fagna útgáfu á heildarsafni sveitarinnar. Sævar Andri Sigurðarson var ekki fæddur þegar hljómsveitin spilaði síðast en fann samt til nostalgíu þegar hann mætti á tónleikana.

Frumflutt

19. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,