• 00:01:31Blockout 2024 og stafræna fallöxin
  • 00:25:42Amor Vincit Omnia segja frá sínu fyrsta lagi
  • 00:32:23Gervigreindarmeðferð

Lestin

Stafræna fallöxin, gervigreindarmeðferð, ástin sigrar allt

Glamúrinn á hinu víðfræga Met Gala-kvöldi í New York í síðustu viku hefur farið öfugt ofan í netverja síðan í síðustu viku. Myndir af stórstjörnum í skrautlegum og íburðarmiklum tískufatnaði fara um miðlana eins og eldur í sinu, og er gjarnan stillt upp andspænis myndum af hryllingi stríðsátaka og hungursneyðar. er kallað eftir því við blokkerum stjörnur og áhrifavalda á öllum helstu samfélagsmiðlum. Hvers vegna?

Baldur og Erla Hlín kynntust í djasshljómfræðitíma í MÍT, og stofnuðu í kjölfarið hljómsveitina Amor Vincit Omnia, sem kemur til með senda frá sér sitt fyrsta lag á föstudaginn. Við tökum púlsinn á Baldri og Erlu, og frumflytjum lagið.

Gervigreindin færist inn á sífellt fleiri svið lífs okkar, það getur bæði vakið spennu og forvitini. Í sumum tilfellum vekur það upp siðferðislegar spurningar eða jafnvel ótta. Í dag er hægt leita sér hjálpar við andlegum kvillum sínum, sækja meðferð hjá gervigreindarspjallmennum sem hafa þá sérhæfingu leiða fólk í gegnum allskonar sjálfsvinnu eða þerapíu. Og ein slík þjónusta er á vegum íslendings, Gunnars Jörgens Viggósonar og heitir Heartfelt services.

Frumflutt

14. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,