Við kynnum nýjan liðsmann í Lestinni. Fríða Þorkelsdóttir mun leysa Lóu af næstu vikurnar.
Hún kíkti upp í Kópavog um helgina, en þar er mikið um að vera þessa dagana - Hamraborg Festival fer fram í sjötta sinn. Listakonan Silfrún Una Guðlaugsdóttir segir frá gjörningi sínum sem fram fór í bílakjallara í Hamraborginni en þar bauð hún upp á bíladans, tónlist, öskrandi hljólreiðafólk og labradora, meðal annars.
Við veltum svo fyrir okkur stöðu fjölmiðla. Í kvöld fer í loftið síðasti kvöldfréttatími Sýnar - eða Stöðvar 2 eins og hún hét lengi. Það eru rétt tæp 40 ár frá því að stöðin hóf að sjónvarpa fréttum og hefur verið mikilvægur hluti af íslensku fjölmiðlalandslagi. En nú verður slökkt á myndavélunum, Hvað segir þetta um stöðu fjölmiðlunar og blaðamennsku á Íslandi í dag, geta hlaðvörp og vefmiðlar tekið keflinu og hvað þýðir þetta fyrir lýðræðið og samfélagslega umræðu í landinu. Við ræðum við Eyrúnu Magnúsdóttur og Eirík Hjálmarsson.
Birt
31. ágúst 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.