Lestin

Kísildalurinn styður Trump, menningarheimar eða kynþættir?

Við rýnum í orð Bjarna Benediktssonar sem hann lét falla í hlaðvarpsþættinum Ein pæling í síðustu viku. Haft var ranglega eftir honum á Vísi hann hefði varað við blöndun kynþátta. Það gerði hann ekki og fréttin var lagfærð. En hver voru skilaboð forsætisráðherra í þættinum? Við veltum fyrir okkur muninum á því vara við blöndun menningarheima eða kynþátta og ráðherra sem geldur varhug við moskubyggingum og gerir greinarmun á ákjósanlegum og óákjósanlegum innflytjendum.

Í yfirstandandi forsetakosningum hefur fjöldi áhrifamanna úr Kísildalnum, Silicon Valley, flykkt sér á bakvið Donald Trump. Hingað til hefur tæknigeirinn frekar stutt við demókrataflokkinn en skiptist hann í tvær fylkingar - en æ fleiri styðja Trump. Það er ekki bara ríkasti maður heims, Elon Musk, heldur líka David Sacks, fjárfestateymið Marc Andreessen og Ben Horowitz, og Winkelvoss-tvíburarnir, svo einhverjir séu nefndir. Við pælum í Trump og tæknigeiranum í Lestinni í dag.

Frumflutt

29. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson

Þættir

,