• 00:01:44Yung Lean í Eldborg
  • 00:27:27Missir og Topp 10 möst (gagnrýni)
  • 00:36:16Nýtt umsjónarfólk Ólátagarðs

Lestin

Yung Lean í Eldborg, rýni í Missi og Topp 10 möst, nýjir umsjónarmenn Ólátagarðs

Yung Lean er sænskur tónlistarmaður sem er fæddur árið 1996, hann sló í gegn fyrir áratug síðan, varð heimsfrægur aðeins 17 ára gamall. Miðar á tónleika hans í Eldborg í Hörpu, sem fara fram á morgun, seldust upp á þremur dögum. Egill Ástráðsson, er aðdáandi Yung Lean, og einn þeirra sem standa því flytja hann inn til landsins, við ræðum áhrif listamannsins og Íslandstenginguna.

Árið 2021 fór í loftið á Rás 2 útvarpsþátturinn Ólátagarður. Þátturinn var frá upphafi nátengdur reykvísku grasrótartónlistarsenunni og útgáfuhópnum Post-dreifing. Lifi grasrótin var slagorð þáttarins. Í tæp fjögur ár hafa þáttarstjórnendur grafið djúpt ofan í moldina og kastað upp á borð ýmsum spírum. Þetta er tveggja tíma prógram á sunnudagskvöldum frá átta til tíu, með viðtölum og helling af tónlist sem heyrist ekki annars staðar, demóum og prufuupptökum frá ungum og efnilegu tónlistarfólki. í haust tóku nýir umsjónarmenn við þættinum, Björk Magnúsdóttir og Einar Karl Pétursson.

Kolbeinn Rastrick rýnir í tvær nýjar íslenskar bíómyndir, Missi eftir Ara Alexander Ergis Magnússon og Topp 10 möst, eftir Ólöfu B. Torfadóttur.

Frumflutt

24. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson

Þættir

,