Heimskviður

259 - Afganistan og óumflýjanlegur samruni í Hollywood

Það styttist í þau tímamót fimm ár verði liðin frá því Afganistan féll í hendur talibana. Reglulega hafa borist fréttir af síversnandi aðstæðum Afgana, sér í lagi stúlkna og kvenna. En hvernig er staðan í Afganistan, þegar talibana hafa verið við völd í tæp fimm ár ílandinu? Við kynnum okkur það í þættinum og heyrum líka af samruna tveggja af stærstu kvikmyndaverunum í Hollywood. Eftir uppboðsstríð við streymisveituna Netflix tókst Paramount tryggja sér Warner Bros. á 111 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði um 13.800 milljarða íslenskra króna. Yfirvöld þurfa samþykkja samrunann en ef af honum verður verða aðeins fjögur stór kvikmyndaver eftir í Bandaríkjunum. Leikarar, framleiðendur, leikstjórar og aðrir hafa áhyggjur af færri tækifærum gangi samruninn í gegn, störfum fækki, kostnaður hækki og úrval fyrir neytendur verði minna. Sigurjón Sighvatsson framleiðandi sem hefur unnið í Hollywood til áratuga segir samruninn hafi verið óumflýjanlegur.

Birt

23. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,