Heimskviður

185 - Mengað blóð og mengað lýðræði

Yfir 30 þúsund Bretar fengu sýkt blóð með veirum á borð við HIV og lifrarbólgu C við blóðgjöf á árunum 1970 til 1991. Samkvæmt rannsóknarskýrslu sem birt var í vikunni er ljóst ráðamenn reyndu breiða yfir hneykslið, til mynda með því eyða gögnum um það árið 1993. Þau sem þáðu smitaða blóðið gerðu það ýmist eftir slys, vegna skurðaðgerðar eða vegna einhvers konar blóðkvilla á borð við dreyrasýki. Auk þeirra þrjú þúsund sem létu lífið af völdum veikinda eftir blóðgjöf barðist fjöldi við langvarandi veikindi. Brian Langstaff, yfirmaður rannsóknarnefndarinnar, segir niðurstöðurnar benda til þess hægt hefði verið koma í veg fyrir þessar blóðgjafir langmestu leyti. Blóðþegarnir eiga inni skaðabætur frá breska ríkinu. Talið er þær eigi eftir nema milljörðum punda.

Rétt eins og aðrar þjóðir Kákasusfjallgarðsins eiga Georgíumenn sér ríka sögu. Aldur mannvistarleifa í þessum heimshluta er talinn í hundruðum þúsunda ef ekki milljónum ára. Nútímasaga Georgíu markast mjög af návíginu við Rússland í norðri. Rússar innlimuðu georgíska konungdæmið árið 1801. Rússakeisari, með sitt gríðarlega landflæmi og fjölmenna her, gat verndað Georgíumenn fyrir utanaðkomandi ógn, til mynda frá Ottómanveldinu í suðvestri. Á sama tíma stýrði hann þó Georgíu með nokkuð harðri hendi. Eftir aldamótin 1900, þegar þjóðernishyggja reið röftum svo víða, reyndu Georgíumenn brjótast til frelsis. Bylting árið 1905 mistókst en sjálfstæðisbaráttan hins vegar ekki. Það var ekki fyrr en eftir bolsévikar höfðu gert byltingu sína í Rússlandi, Georgíumenn fengu sjálfsyfirráð aftur, rúmum 100 árum eftir innlimun Rússlandskeisara. Gleðin var þó skammvinn, þar sem rauði herinn þverbraut sátt sem gerð hafði verið við georgísku þjóðina um sjálfstæði hennar, og marseraði inn í Tiblisi árið 1921. Aðeins ári síðar var Georgía formlega orðin hluti hinna nýju Sovétríkja.

Frumflutt

25. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,