Heimskviður

107 | Neyðarástand á Sri Lanka og Transnistría

Rétt rúmur mánuður er líðinn frá því neyðarástandi var lýst yfir á Srí Lanka í Indlandshafi vegna fjölmennrar mótmælaöldu. Þar er sögð dýpsta efnahagskreppa frá því eyjan fékk sjálfstæði frá bretum árið 1948. Þau sem mótmæla krefjast þess forseti landsins, Gotabaya Rajapaksa, ásamt ríkisstjórn segi af sér vegna meintrar spillingar og vanhæfni. Mótmælin hafa verið afar hörð. Lögreglan beitti í þónokkur skipti táragasi á mótmælendur sem köstuðu múrsteinum á móti og kveiktu í bílum. Forsetinn lét loka fyrir samfélagsmiðla og gaf her og lögreglu rýmri heimild til handtaka mótmælendur og fangelsa án dóms og laga eftir reynt hafði verið brjótast inn í forsetahöllina. Rajapaksa hefur samþykkt nefnd fari fyrir því stofna til bráðabirgðastjórnar í landinu, allir þingflokkar taki sig saman til þess vinna saman því eina markmiði halda ríkiskassanum á floti og tryggja efnahagslegt öryggi landsins til framtíðar. Jóhannes Ólafsson rýnir í stöðu Srí Lanka og ræðir við Ásgeir Brynjar Torfason og Guðbjörgu Ríkey Th. Hauksdóttur.

Hefur þú heyrt um Transnistríu? Við láum þér það ekki, hafirðu aldrei um þetta litla hérað í vesturhluta Moldóvu. Moldóva er á milli tanna fréttafólks og stjórnmálamanna, endar hefur landið - og nánar tiltekið Transnistría, landamæri Úkraínu í austri. Atburðir síðustu vikna í Transnistríu hafi valdið nokkrum áhyggjum, og óttast ráðamenn í Moldóvu og víðar Rússar ætli sér ekki láta sér það nægja, ráðast inn í Úkraínu. Guðmundur Björn fjallar um málið.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson.

Birt

7. maí 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,