Heimskviður

203 - Meintur morðingi í New York og Stonehenge

Forstjóri tryggingafyrirtækis var skotinn til bana úti á götu í New York í Bandaríkjunum í síðustu viku. Morðið hefur vakið mikla athygli og það segja það veki athygli á brotalömum í bandaríska heilbrigðiskerfinu. Meintur morðingi var handtekinn í vikunni og morðið og ástæður þess verið mikið í fjölmiðlum alla þessa viku, og segja honum hafi verið hampað af mörgum. Aðallega af því hann er ráðast á kerfið, heilbrigðiskerfið bandaríska sem svo margir eru ósáttir við og sérstaklega gagnvart tryggingafyrirtækjum, þau græða á og fingri á meðan fólkið þarf greiða fúlgur fjár fyrir heilbrigðisþjónustu. Og það er líka algengt þeir sem brjóta reglurnar vekja athygli fólks og það vill skilja hvers vegna hann gerir þetta. Af því þessi maður sem er í haldi, Luigi Mangione, var fyrirmyndarnemandi og fátt sem benti til þess hann væri líklegur til fremja morð.

Í seinni hluta þáttarins förum við til Stonehenge en fyrr á þessu ári komu fram nýjar upplýsingar um þetta dularfulla og heillandi mannvirki á Salisbury-sléttunni í suðvesturhluta Englands. Upplýsingar sem varpa betra ljósi á uppruna steinanna sem mynda Stonehenge - en vekja líka upp áhugaverðar spurningar um hvernig það var skipulagt og reist fyrir um fimm þúsund árum. Í vísindagrein í Nature er sýnt fram á einn af lykilsteinunum í þessu mannvirki - Altarissteinninn svonefndi, sem vegur um sex tonn - var fluttur alla leið frá norðurhluta Skotlands, um sjö hundruð og fimmtíu kílómetra leið. Nýjar upplýsingar, sem vekja upp nýjar spurningar. Það er Björn Malmquist sem ætlar reyna svara einhverjum þeirra. Eins og til dæmis, hvernig steinninn komst alla þessa leið og hvernig Stonehenge var reist á sínum tíma.

Frumflutt

14. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,