Heimskviður

122| Lobbíistar, pólitík og Kanye West

Í Svíþjóð hafa nokkrir fyrrverandi stjórnmálmenn og áhrifamenn í stjórnmálum hagnast gríðarlega undanfarin ár, með því staðsetja sig á mörkum stjórnmála og atvinnulífs. Sumir hafa grætt á einkavæðingu sem þeir stóðu sjálfir að. Aðrir hafa farið starfa sem lobbýistar nær strax og þeir hættu í stjórnmálum. Óljós mörk stjórnmálaþátttöku, hagsmunagæslu og fyrirtækjareksturs hafa verið gagnrýnd í Svíþjóð, líkt og í Danmörku, Þýskalandi og víðar. Líkt og Kári Gylfason, tíðindamaður okkar í Gautaborg, fjallar um.

Instagram- og Twitterreikningum Kanye West var lokað fyrr í mánuðinum. Ástæðan er hatursorðræða tónlistargoðsagnarinnar, nánar tiltekið það sem fjölmiðlar kalla gyðingahatur. West, sem hefur breytt nafni sínu í Ye, var gagnrýndur harðlega fyrir ummæli sín sem hann lét falla bæði á samfélagsmiðlum og í viðtölum um miðjan mánuðinn. NBC greindi frá færslu, sem West eyddi reyndar, þar sem hann deildi skilaboðum á milli sín og rapparans Sean Combs, betur þekktur sem Puff Daddy eða P Diddy, þar sem West fullyrti Combs væri undir stjórn gyðinga og vitnaði síðan í kenningar sem eru byggðar á gyðingafordómum, andúð og jafnvel hatri. Sunna Valgerðardóttir skoðaði það nýjasta, og smávegis af því gamla, sem er frétta af furðufuglinum og tónlistargoðsögninni Kanye "Ye" West.

Í Heimskviðum er fjallað um það sem gerist ekki á Íslandi. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Birt

29. okt. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,