Heimskviður

Sumar-Heimskviður / Stríð vegna vatns og Óperudraugurinn

Í Sumar-Heimskviðum rifjum við upp efni út þáttum vetrarins og búum til nýja þætti úr áður fluttu efni okkar.

Öldum saman hafa stríð verið háð vegna auðlinda og hver er ein dýrmætasta auðlind veraldar? Það er vatnið. Það þrifist ekki líf á plánetunni jörð án þess. Staðbundin átök, skærur eða deilur milli hópa vegna vatns eru algeng en ekki hefur enn brotist út stríð milli ríkja eingöngu vegna vatns. Gæti það gerst í náinni framtíð? Ólöf Ragnarsdóttir leitaði svara við því.

Þegar ellefu hljóðfæraleikarar tóku sér hlutverk í hljómsveitinni fyrir söngleikinn um óperudrauginn á Broadway árið 1988 grunaði þá líklega fæsta þarna væri ævistarfið komið. Þrjátíu og fimm árum, og hátt í fjórtán þúsund sýningum síðar, var komið lokasýningunni. Þetta var í apríl í fyrra. Vinsældir söngleikja eru stundum samofnar því sem er gerast í samfélaginu. Til dæmis þótti söngleikurinn Mamma Mia kærkominn þegar hann var frumsýndur í New York stuttu eftir hryðjuverkaár ásirnar þar í borg. Birta skoðaði sögu söngleikja, ástæður vinsælda þeirra og framtíðarhorfur.

Frumflutt

15. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,