Heimskviður

181 - Kosningar í Suður Afríku og Børsen sem brann

Við fylgdumst mörg með hinni sögufrægu bygginguBørsen brenna í fréttum á dögunum. Byggingin sem fæst okkar hafa líklega komið inn í nema við höfum átt erindi við viðskiptaráð Danmerkur undanfarin ár, eða þar áður lagt leið okkar í kauphöll landsins. En bygginguna hafa flest sem hafa rölt um stræti Kaupmannahafnar séð. Hún skar sig úr, ekki síst vegna drekaturnspíru sem teygði sig upp af húsþakinu, en er hruninn. Oddur Þórðarson segir okkur allt um Børsen.

Það verða kosningar í Suður Afríku eftir tæpan mánuð. Og það er útlit fyrir þær verði spennandi og jafnvel sögulegar. Það gæti gerst í fyrsta sinn frá afnámi aðskilnaðarstefnunnar afríska þjóðaráðrið missi meirihluta á þingi. Í ár verða þrjátíu ár liðin frá afnámi aðskilnaðarstefnunnar þar í landi. Og þrjátíu ár frá því Nelson Mandela tók við völdum sem forseti landsins. En af hverju er flokkur frelsishetjunnar Nelsons Mandela ekki lengur flokkur fólksins í Suður Afríku? Það eru fyrst og fremst efnahagsmálin sem þar vega þyngst. Þrátt fyrir Suður-afrískt efnahagslíf nokkuð stöðugt þá mælist atvinnuleysi hvergi hærra. Hjá ungu fólki, 25 ára yngri, er það meira en 60% og staðreynd vegur auðvitað þungt í huga kjósenda. Bjarni Pétur fjallar um málið.

Frumflutt

27. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,