Heimskviður

Sumar-Heimskviður / Framtíð Kristjaníu og bruninn í Børsen

Við ætlum vera í Danmörku í SumarHeimskviðum dagsins og ætlum byrja í Kristjaníu. Þetta er umfjöllin frá því í desember þegar Hallgrímur Indriðason fór með okkur á Pusherstræti. Fyrr á þessu ári var kannabissölu hætt alfarið í fríríkinu, en þessi umfjöllun var unnin í aðdraganda þess.

Annað stórt fréttamál frá Danmörku var í vor þegar við fylgdumst mörg með hinni sögufrægu byggingu Børsen brenna í fréttum. Byggingin sem fæst okkar hafa líklega komið inn í nema við höfum átt erindi við viðskiptaráð Danmerkur undanfarin ár, eða þar áður lagt leið okkar í kauphöll landsins. En bygginguna hafa flest sem hafa rölt um stræti Kaupmannahafnar séð. Hún skar sig úr, ekki síst vegna drekaturnspíru sem teygði sig upp af húsþakinu, en er hruninn. Oddur Þórðarson vann umfjöllun um Børsen.

Frumflutt

13. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,