Heimskviður

Sumarútgáfa: Karlar

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í öðrum sumarþættinum er karlar.

Fjallað er um andlát Kobe Bryant, eins besti körfuboltamanns allra tíma, hefði farist í hörmulegu þyrluslysi í janúar. Kobe var ekki dæmigerður íþróttamaður. Hann var líka skáld, og óskarsverðlaunahafi, sem var í stöðugri leit fullkomnun. leit mótaði hann, og rakst Kobe á ófáa veggi á leiðinni. Þá er einnig fjallað um Andrés Brétaprins, næstelsta son Elísabetar Englandsdrottningar, sem stóð í ströngu í vetur vegna ásakana um hafa misnotað stúlku undir lögaldri skömmu eftir aldamót. Og svo er það John Bercow, hinn litríki forseti neðri málstofu breska þingsins. Bercow hætti síðasta haust, en setti mark sitt á embættið. Ekki bara með líflegri framkomu í þingsalnum, heldur einnig með því auka vægi þingsins. En hver er þessi maður, og hvaða þýðingu hefur embættið sem hann ætlar hætta gegna?

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Frumflutt

26. júní 2020

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,